Ég hef tekið mér það leyfi að opna vefdagbók fyrir Snotrunes. Hugmyndir að því sem hér má gjarnan birtast eru:
- Sögur frá Borgarfirði eystri og Snotrunesi
- Myndir (og/eða tenglar að albúmum á netinu)
- Upplýsingar um úthlutun sumarleyfisdaga
- Athugasemdir frá fólki um það hvort það nýtir sér sína daga
- Upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir
- O.fl.
Ef þið viljið gjarnan geta bætt dagbókarfærslum við síðuna, sendið mér þá póst og ég get bætt ykkur við ritsjórnarlistann. Einnig gætuð þið sent mér færslur í pósti sem ég gæti birt fyrir ykkar hönd. Allir geta bætt athugasemdum við færslur sem til eru.
Með von um góða þátttöku!
sigrundora@gmail.com
1 ummæli:
Sæl Sigrún, stórkostlegt framtak hjá þér og til fyrirmyndar hjá þér nafna mín. Heimasíðan kom mér svo sannarlega skemmtilega á óvart og ég segi bara takk fyrir framtakið. Aldeilis frábært að hafa allar þessar upplýsingar á einum stað og hinar ýmsu krækjur til að fá frekari upplýsingar. Þú átt heiður skilið mín kæra.
Sigrún Jónsdóttir
Skrifa ummæli