Hin ágæta tónlistarkona, Emilíana Torrini, mun ásamt hinum írska Damien Rice koma fram á tónleikahátíðinni Bræðslunni í sumar.
Tónleikarnir með stirnunum fara fram laugardaginn 26. júlí, en hátíðin, sem nú verður haldin í fjórða skiptið, hefst deginum áður. Aðaltónleikar hátíðarinnar fara sem fyrr fram í gömlu síldarbræðslunni í Bakkagerði.
05 maí 2008
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)