Hin ágæta tónlistarkona, Emilíana Torrini, mun ásamt hinum írska Damien Rice koma fram á tónleikahátíðinni Bræðslunni í sumar.
Tónleikarnir með stirnunum fara fram laugardaginn 26. júlí, en hátíðin, sem nú verður haldin í fjórða skiptið, hefst deginum áður. Aðaltónleikar hátíðarinnar fara sem fyrr fram í gömlu síldarbræðslunni í Bakkagerði.
05 maí 2008
15 apríl 2008
Úthlutun Snotruness 2008
| Ásgeir Sigurvinsson | 24.05 – 02.06 |
| Sigrún Jónsdóttir | 02.06 - 11.06 |
| Elvar Hjaltason | 11.06 - 15.06 |
| Anna Valgerður Hjaltadóttir | 15.06 – 02.07 |
| Kristín Jónsdóttir | 02.07 - 11.07 |
| Ólafur Sigurvinsson | 11.07 - 20.07 |
| Andrés Sigurvinsson | 20.07 - 29.07 |
| Valgerður Jónsdóttir | 29.07 – 07.08 |
| Andrés Hjaltason | 07.08 - 11.08 |
| Dánarbú Björgheiðar Andrésdóttur | 11.08 - 22.08 |
Röðin er í samræmi við það sem kveðið er á um í reglum félagsins.
Miðað er við að húsinu sé skilað um hádegisbil og því hægt að koma í það eftir hádegi.
Miðað er við notkun frá maílokum júní, júlí, ágúst og fram í byrjun september. Stjórnin sendir dagsetningar til félaga ekki seinna en 20. mars ár hvert.
Í reglum um afnot af húsinu segir orðrétt: Ef húsið er ekki notað er æskilegt og sjálfsagt að láta aðra eignaraðila vita af því að húsið verði autt umrætt tímabil þannig að aðrir geti nýtt sér það. Ekki má leigja húsið til óviðkomandi utan ofangreinds tíma nema með samþykki stjórnar.
Sent 28. mars 2008
Fyrir hönd stjórnar
Sigrún Jónsdóttir
09 apríl 2008
Heimasiða Snotruness opnar!
Kæra Nesfólk!
Ég hef tekið mér það leyfi að opna vefdagbók fyrir Snotrunes. Hugmyndir að því sem hér má gjarnan birtast eru:
Ef þið viljið gjarnan geta bætt dagbókarfærslum við síðuna, sendið mér þá póst og ég get bætt ykkur við ritsjórnarlistann. Einnig gætuð þið sent mér færslur í pósti sem ég gæti birt fyrir ykkar hönd. Allir geta bætt athugasemdum við færslur sem til eru.
Með von um góða þátttöku!
sigrundora@gmail.com
Ég hef tekið mér það leyfi að opna vefdagbók fyrir Snotrunes. Hugmyndir að því sem hér má gjarnan birtast eru:
- Sögur frá Borgarfirði eystri og Snotrunesi
- Myndir (og/eða tenglar að albúmum á netinu)
- Upplýsingar um úthlutun sumarleyfisdaga
- Athugasemdir frá fólki um það hvort það nýtir sér sína daga
- Upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir
- O.fl.
Ef þið viljið gjarnan geta bætt dagbókarfærslum við síðuna, sendið mér þá póst og ég get bætt ykkur við ritsjórnarlistann. Einnig gætuð þið sent mér færslur í pósti sem ég gæti birt fyrir ykkar hönd. Allir geta bætt athugasemdum við færslur sem til eru.
Með von um góða þátttöku!
sigrundora@gmail.com
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)