09 apríl 2008

Heimasiða Snotruness opnar!

Kæra Nesfólk!

Ég hef tekið mér það leyfi að opna vefdagbók fyrir Snotrunes. Hugmyndir að því sem hér má gjarnan birtast eru:

  • Sögur frá Borgarfirði eystri og Snotrunesi
  • Myndir (og/eða tenglar að albúmum á netinu)
  • Upplýsingar um úthlutun sumarleyfisdaga
  • Athugasemdir frá fólki um það hvort það nýtir sér sína daga
  • Upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir
  • O.fl.

Ef þið viljið gjarnan geta bætt dagbókarfærslum við síðuna, sendið mér þá póst og ég get bætt ykkur við ritsjórnarlistann. Einnig gætuð þið sent mér færslur í pósti sem ég gæti birt fyrir ykkar hönd. Allir geta bætt athugasemdum við færslur sem til eru.

Með von um góða þátttöku!

sigrundora@gmail.com

1 ummæli:

Unknown sagði...

Sæl Sigrún, stórkostlegt framtak hjá þér og til fyrirmyndar hjá þér nafna mín. Heimasíðan kom mér svo sannarlega skemmtilega á óvart og ég segi bara takk fyrir framtakið. Aldeilis frábært að hafa allar þessar upplýsingar á einum stað og hinar ýmsu krækjur til að fá frekari upplýsingar. Þú átt heiður skilið mín kæra.

Sigrún Jónsdóttir